Tútturnar

Tútturnar hrisstast

30.09.2006 09:57:13 / Helenagu

Pirrí porr porr!!

Ég var búin að skrifa SVAKA langa færslu og svo þegar ég staðfesti þá hvarf ALLT sem ég hafði skrifað! Ohh enn fúlt. En ég skal reyna að skrifa eitthvad aftur.

 

En allavega- hvað segjiði gott?? Sorry hvað ég hef haft lítið samband  síðan ég kom út- hef bara verið á 150 sko. Er byrjuð í verknámi á spítala uppi í HORNBÆK!!!!! Sem er 2 tíma fyrir utan köben, svo vinnudagarnir mínir eru ANSI langir- eða um 13 tímar með ferðalagi- svo ég orka nú ekki beint mikið eftir vinnu. 8|

Annars er ég að vinna á ÆÐISLEGRI deild, endurhæfingardeild fyrir mænuskaðaða, og eru allir sjúklingarnir ný-skaðaðir. Svo þetta er líka oft rosa átakanlegt og erfitt að vera þarna. Og maður þarf virkilega að passa sig að taka þeirra sorg ekki of mikið inn á sig, sem er svolítið erfitt- ég þarf að læra að loka mér doldið! Það kemur..  En þetta er frábær staður, yndislegt starfsfólk sem vinnur þarna, og er það að gera svakalega góða hluti. Svo ég tel mig vera allveg ótrúlega heppna með þá deild sem ég lenti á.

Fyrir utan vinnu þurfum við að vinna hin ýmsu verkefni og skila skriflegum verkefnum í hverri viku, og lesa og lesa og lesa og lesa og…. Stundum held ég að kennarinn minn haldi að minn sólahringur hafi fleirri tíma en hennar. Þar sem hún hleður og hleður á mann verkefnum en pælir ekkert í því hvenær í veröldinni maður á að ná að gera þetta allt. En ég ætla að hætta að kvarta- því þótt það sé mikið að gera þá er þetta allt skemmtilegt og það var jú ég sjálf sem óskaði eftir þessu lífi, ekki satt! :D

Annars er ekki mikið að frétta úr mínu félagslífi, það er frekar aumingjalegt þessa dagana sökum tímaskorts. En það verður nú reyndar “Íslensk kvikmyndahátíð” hér í kvöld, Sódóma Reykjavík og Jón Oddur og Jón Bjarni verða á dagskrá. Maður verður nú að sýna þessum dönum og þjóðverjum smá íslenskt, ekki satt!!

Næstu helgi verðum við svo með party hérna heima. Þemað verður skemmtiferðasigling, veit ekki hvernig í veröldinni ég á að klæða mig fyrir skemmtiferðasiglingu, einthverjar hugmyndir?!!?!?! Hildur, ef þið Geiri eruð ekki með neitt plan næsta laugardag þá eru þið MEIRA en velkomin að koma. Það verður svaka stuð, vonandi. Það verður allavega fullt af fólki og bar og alle græjer!! ;)Svo kemru Lotte vinkona líka til mín næstu helgi, svo það verður nú meira fjörið næstu helgi! Fyrir þá sem ekki vita þá er Lotte flutt til Þýskalands! :frown:

Rakel- enn gaman að heyra að það taki bara 4 tíma á milli- það er ALLT annað!! Það er nú vel geranlegt, bara helmingi lengur en í vinnuna mína! ;) En er komið eitthvad meira plan hjá ykkur?? Eitthvað nýtt með íbúðir? Hvernig gengur hjá Gumma?                      

 Ósk- ohh ég vildi Óska (ósk –hehe) að ég gæti skroppið til þín núna bráðum. En því miður sé ég það ekki gerast, allaveg ekki núna í oktober- en kannski í november. Hvenær feðru annars heim?? Lok des? Spjöllum saman á msn bráðum! ;)

En jæja ætla að fara hunskast til að klára næringarfræði –verkefnið mitt. Er svo að fara með Sígríði á Loppemarkað seinnipartinn og svo verður skellt sér á WAGAMAMA – elska þann stað!! Love, love, love it! :haha:

Eigið góða helgi öll sömul. Sakna ykkar mikið og hugsa mikið heim þessa dagana.  Hún Sirrý vinkona fór heim í gær og verður í mánuð. Get nú ekki neitað því að ég fékk heimþrá þegar ég sá hana fara heim. Langaði svo mikið til að fela mig bara í töskunni hennar og skjótast heim. Sérstaklega þar sem það var föstudagur og þá er fjölskyldan mín alltaf saman komin að borða góðan mat og hafa það huggulegt. Ohh væri svo til í að skótast aðeins heim og knúsa alla, sérstaklega litlu músina mína hana Bríeti og litla stubbinn minn hann Hegg og að sjálfsögðu alla hina sem mér þykir vænt um heima! En það verður að bíða til jóla! :DÞá verða allir knúsaðir í kaf af mér! ;)  

 Love, Helena

 

P.S. ég set á commenta keppni- sá sem commentar fyrstur vinnur- og sá sem commentar oftast vinnur líka – og allir hinir sem commenta vinna líka,  - vá mínar keppnir eru skemmtilegar- allir vinna sem taka þátt! 8)8)

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 17:20:41 / liljag

jæja..

Fokkfeises....mí angrí

Er enginn áhugi fyrir saumó það er að verða kominn OKTÓBER og nobody says anything....:whut:

ég er að spá í að skipta yfir í virkari saumaklúbb:|


» 14 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 13:23:06 / liljag

Þessi er tileinkuð....

just for you Hanna my luv.....

svo verðuru að fara hætta þessari Araba-áráttu


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 12:13:52 / hanna

Hollt og gott...............

Hver vill koma með mér á námskeið með Achmed og Toggu????

Right - I´m not heilsufrík;)

Góða skemmtun með Sollu - bið kærlega að heilsa henni og hlakk til að fara á fyllerí með henni

Kv. Æðstatútta


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 12:45:15 / liljag

who wants....

Hver vill koma með mér á Sollu námskeið?:lol:

hér er það sem maður lærir:D

Námskeiðið samanstendur af fræðslu og sýnikennslu

Þar kynnum við og kennum:
 - skynsamlega leið til að breyta mataræðinu
 - að útbúa fljótlega, gómsæta og næringarríka rétti m/heilsusamlegum eldunaraðferðum
 - hráefnisfræðslu
 - hvernig meðhöndla á grænmeti, ávexti, tófú, baunir, korn og annað heisluhráefni
 - heilsusamlega eftirrétti
Væn uppskriftarmappa fylgir ásamt fullri máltíð.

látið mig vita helst í gær ef þið viljið fara;)

Námskeiðið er eitt kvöld kl. 18.50-23:00
Námskeiðsdagar: 18. september, 19.september, 25. september, 26. september, 2. október og 3.október.
Verð 5.900 kr.
Kennari er Sólveig Eiríksdóttir




» 4 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 08:44:49 / rakel

Afmælisbarn

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Ósk, hún á afmæli í daaaaaaaag.

TIL HAMINGU MEÐ DAGINN TÚTTUSKRÚTT. Milljón trilljón kossar knús og faðmlög :). Njóttu dagsins

Kv. Rakel


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 09:23:23 / liljag

This is a wake up call....

drullisti til að skrifa á síðuna..annars kem ég með eina svona mynd á dag fyrir ykkur þangað til þið verðið alveg trylltar..... i know you want him:D múha

eigið góðan dag  

Lilja


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 23:54:58 / yfirtútta

La vida en Madrid

Jæja túttur mínar þá er ég komin Madridar endilega fylgist með mér á heimasíðunni okkar Eyrúnar http://guapaschicas.bloggar.is/

Kossar og knús frá Madrid

Ósk


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 21:49:02 / rakel

Ósk að fara til Madríd

Hún Ósk okkar er að fara í skiptinám til Madrídar í nótt og við sjáum hana ekkert fyrr en um jólin (og ég kannski ekki einusinni þá).

Góða ferð Ósk mín og gangi þér rosalega vel í skólanum, þetta verður án efa krefjandi en skemmtilegt að læra stærfræðina á spænsku og svona ;)

Gangi ykkur öllum hinum annars rosa rosa rosa vel í skólanum og þér Helena á spítalanum ;) ... Ég ætla bara að fara að dúlla mér í vinnunni og svo heimafyrir þegar ég fer til Svíþjóðar.

síjú babes

Ǘ̍牢̀᐀ύǕ̈獩楶敤oǓ̊慦獬eǑ̌ј

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 09:40:25 / Helenagu

Fílamadurinn

Ohh man... Ég var stungin af GEITUNGI á leidinni í skólann í morgun! :cry:           Í  andlitid,  nota bene, :whut:      

Var med klút um hálsinn sem var frekar laus, og thad var svo mikill vindur ad klúturinn hefur líklega slegid geitunginn og thess vegna hefur hann stungid mig..

Ég er ordin STOKK-bólgin í framan sko..

Hef einu sinni ádur verid stungin- thá var ég med Ósk á spáni. Nema thá var ég stungin í annad brjóstid. Ég leit út eins og ég hefdi fengid mér silikon, nema thad hefdi gleymst ad setja í hitt brjóstid. Fjør!!  

Stokk-bólgni fílamadurinn kvedur! :klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 09:01:53 / liljag

Happy weekend...

Ég og hann Snati óskum ykkur Happy Weekend görlís....

sjást í kvöld:D

lilly


» 6 hafa sagt sína skoðun