Tútturnar

Tútturnar hrisstast

15.01.2009 20:08:24 / tinnaosk

Útskrift

Hæ túttur...

Efast reyndar stórlega um að þessi samskiptaleið muni virka... En ykkur er öllum boðið í útskriftarveisluna mína á laugardaginn kl.20. Hún verður haldin heima hjá ma og pa á Bergstó (you know where..). Endilega látið mig vita hvort þið komist!!

(...annars sendi ég ykkur facebook event, getið RSVP-að þar líka ef þið viljið)
Vonast til að sjá ykkur!

kv.Tinna

ps. Gat ekki boðið fyrr því Danalufsurnar skiluðu ekki staðfestingu á að ég hefði náð öllu fyrr en í morgun - gleði.

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 20:48:56 / tinnaosk

hey beibs..

Vildi bara rétt henda inn á smá jólakveðju til ykkar allra þar sem það var eitthvað ansi fátt um jólakortin í ár ;)

Gleðileg jól elskurnar! Vonandi hafið þið það náðugt yfir hátíðarnar, búin að sakna ykkar allra í köben...nema Helenu, hitti hana :) krúttuna.

Sé ykkur vonandi sem fyrst!

kv.

Tinna litla :*:*

ps. Takk fyrir síðast Lilja :)

pps. Er eitthvað annað í jólum djamm?? Need info please.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 20:39:22 / hanna

LOKSINS ný færsla

Jæja túttur, þar að segja þær sem eru á landinu, eruð þið til í hitting????

Þið fáið að ráða hvort túttuklúbbur verður hjá mér á miðvikudaginn eða í byrjun desember?

Endilega commentið cuties

Rakel kemur þú ekkert um jólin?

Knús frá Æðstu

» 11 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 00:50:01 / Laufey

Hun har födelsedag i dag!

Hún sætasta Helena okkar er 25 ára í dag!!!!!!

Innilegar hamingjuóskir elsku danska rúsínudúllan okkar.....

Læt eina  MEGABABE mynd fylgja af skvísunni:)



Sporðdrekinn:
Sporðdrekar eru oftast grannir, með hvöss og djúp augu og þungar augabrýr. Þeir eru yfirleitt afar kynþokkafullir og klæða sig líka þannig, gjarnan í flegnar blússur eða svört leðurföt. 
Sporðdreki er vatnsmerki og tengist djúpum tilfinningum, yfirleitt þeim sem snerta kynlíf og sjálfsbjargarhvöt. 
Það er oft sagt, að Sporðdrekinn sé misskildasta merki dýrahringsins, og flestum þykir fólk fætt í því merki leyndardómsfullt og spennandi. Undir heilsteyptu ytra borði Sporðdrekans leynist oft gríðarleg tilfinningaólga, afbrýðisemi og ástríða, og fólk í þessu merki reynir af fremsta megni að skapa sér tilfinningalegt öryggi í heimi sem því finnst fjandsamlegur. 
Sporðdrekar hafa mjög næma eðlisávísun og fæstir geta farið á bak við þá, og þeir hafa oftast mikinn áhuga á yfirskilvitlegum efnum.
Þeir eru hefnigjarnir en einbeittir og þolgóðir og gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Sporðdrekar væru framúrskarandi byltingarmenn, einkum af öfgakenndara taginu, en þeir kasta sér reyndar af ástríðu út í hverja þá vinnu sem vekur áhuga þeirra og kitlar ímyndunaraflið. 
Í íþróttum velja þeir sér iðulega eitthvað sem hætta fylgir (eða gæti fylgt), t.d. skylmingar, karate og teygjuhopp, en þeir hafa líka yndi af dansi og tónlist. 
Til að öðlast lífshamingju, þarf Sporðdrekinn að reyna að sigrast á innri ótta sínum og sálarkvölum, sem þeir eiga erfiðara með að leiða hjá sér en aðrir.

Eigðu súper góðan dag í dag elsku Helena!

Knús og endalausir túttukossar
XoXoXo

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 19:47:54 / rakel

Afmælisbarn dagsins

Ævintýra prinsessan okkar hún Ósk á afmæli í dag og hefur því náð okkur hinum í heldri manna tölu...eða segir maður ekki svona? Hún er núna stödd í Argentínu á 5 stjörnu lúxushóteli þar sem Hemmi kom henni skemmtilega á óvart í morgun J Ég vill nú ekkert vera að segja eitthvað sem ég má ekki segja hérna á síðunni og ráðlegg ég því ykkur að fara bara inn á síðuna þeirra: www.123.is/flakkarar

Elsku Ósk okkar, Innilega til hamingju með daginn. Njóttu þín í dag sem og í restinni af ævintýrinu þínu. Það er eins gott að þú passir alla þessa skartgripi sem þú ert nú þegar búin að sanka að þér J

1000 kossar og knús frá öllum túttunum þínum


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 16:57:31 / yfirtútta

Tjútterí tjútt ..... 30. ágúst

Jæja þá styttist heldur betur að við skötuhjúin leggjum af stað út í heim svo við höfum ákveðið að slá til veislu laugardagskveldið 30. ágúst. Okkur langar svo að sjá alla áður en við leggjum af stað á vit ævintýranna!

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest :) Látið endilega vita hvort þið komið eða ekki.

Knús og kossar
Ósk

ps. við höfum stofnað blogg síðu http://www.123.is/flakkarar/

» 10 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 13:43:01 / Laufey

Hittingur á fimmtudaginn kl: 20

Jæja ég og Rakel ákváðum að við túttur færum á kaffihús á 
FIMMTUDAGINN KL: 20:00 Á B5. (Bankastræti 5)
Ef það eru aðrar óskir endilega látið heyra í ykkur!

En annars sjáumst við vonandi ALLAR á fimmtudagskvöldið og eigum kósí kvöld saman:)

Hlakka til að sjá ykkur skvísur!

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 08:45:51 / rakel

Hittingur

 Jæja görlís

Nú eru allir á leið út og suður og því tilvalið að taka einn hitting. Helena kemur heim í dag held ég og Laufey búin í prófum á morgun ef ég man rétt. Ég fer út eftir helgina og því heimta ég einn hitting í þessari viku.

Hvað segi þið um að borða saman?  Tillögur eru þessar;

-          Vox í hádeginu (Geggjað hlaðborð hjá þeim á flottu verði)

-          Út að borða föstudagskvöld

-          Bara hittast á kaffihúsi

-          Bara hittast heima hjá einhverri


Hvaða tími hentar ykkur best???

KV. Rach


» 19 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 09:58:22 / liljag

Til hammó með ammó

Elsku Rakel

Innilegar hamingju óskir með hrukkuafmælið 25 ára......
Hafðu það rosa gott í dag og láttu alla þjóna þér ;)
Muchos knúsos til þín og kossar!!
http://images24.fotki.com/v769/photos/1/1150128/4951168/Picture016-vi.jpg

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.08.2008 17:23:37 / rakel

08.08.08

Ég hef ákveðið að fylgja ykkur flestum eftir .... hætta gelgjulátum og barnaskap og taka að mér 25 ára aldurinn.  Hann bróðir minn hringdi svo í mig í gær ekki sáttur við systu að ætla ekki að halda allsherjar partý í tilefni elliáranna svo ég hef ákveðið að halda bara kaffi J. Ekki mikið varið í að halda brjálað partý svona með eina litla á heimilinu ... stutt en þó með stór eyru og augu (erum að tala um að hún vildi fá maskara í morgun og ennþá eru 3 mánuðir í 3ja ára aldurinn...fékk svo bara í plati, leit í spegil og sagði „ég sé ekki neitt mamma“).

AMMLI kl: 15:00 í tilefni 08.08.08 en haldið laugardaginn 09.08.08 að Holtási 7 í Garðabæ.  Ég lofa bangsakökum, blöðrum, lúðrum og kórónum.

Vonast til að sjá ykkur allar með börn og buru :D
Megið alveg kommenta hvort þið komist eða ekki þar sem ég veit að margar eru ekki heima.
 

Smútsí...Rach


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 10:43:36 / rakel

Síminn týndur

Takk fyrir helgina túttur
Fyrir mína parta var þetta æðisleg ferð og ég naut mín svooooo vel með ykkur, og ekki eyðilagði fyrir góða veðrið á laugardaginn. Vænti þess að nokkrar hafi sett á sig kælikrem í gær :)

Ég held ég hafi gleymt símanum mínum í bústaðnum eða fyrir utan hann. Vilji þið kíkja í töskurnar ykkar og athuga hvort hann hafi nokkuð endað óvart í einhverjum töskum (Kannski í bílnum þínum Lilja Björk).

Smúútsý....Trúnótútta (sem fékk eitthvað takmarkað að njóta sín á trúnó)


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 08:43:46 / Laufey

Við kynnum til leiks....crazy girls!



Á myndinni eru eftirtaldar túttur sem eru skráðar í bústaðinn
Efri röð: Ellen, Tinna, Ósk, Lilja, Helena
Miðju röð: Rakel, Hildur
Neðsta röð: Laufey

Þá er bara komið að því að Tútturnar sæki í sig veðrið og það í bústað!
Þar sem þetta er ekki í fyrsta skipti sem Tútturnar fara út á land saman þá ættum við að vita hvað við erum að fara út í....

Allavegana þá ætlaði ég að telja upp nokkur atriði sem vert er að muna eftir og endilega commentið ef það vantar/gleymist eitthvað hjá mér!
1. Hressleiki
2. ÁFENGI- ( mjög mikilvægt fyrir tútturnar)
3. Sundföt- (persónulega tek ég mín ekki með en þið ráðið hvað þið gerið) !!
4. Myndavél- til að festa atburði helgarinnar á filmu og múta síðan túttum í framtíðinni eftir því hversu vel settar við erum :)
5. Ipod- virkar það Hildur?? ´geisladiskar eru náttla so ´98
6. Eyrnatappa til að henda upp þegar Rakel fer á trúnó
7. Leppa fyrir augun þegar Hildur og Laufey byrja að dansa
8. Sólgleraugu til að þurfa ekki að horfa uppá hvítar/sjálflýsandi túttur í pottinum sem ekki hafa fengið mikla sól á kroppinn.

Man ekki eftir fleiru að þessu sinni, en um að gera bæta við listann :)

Ég, Hildur og Rakel förum um kl: 16, verslum og gerum og græjum og svo skilst mér að hinar tútturnar leggi í hann kl: 17:30.....svo við verðum eiginlega bara á sama tíma sem er MEGA AWESOME !!

sjáumst MEEEEEGA hressar


» 19 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 12:30:40 / rakel

Bústaðaferð 2008 - helgina 18-20 júlí

Meðlimir:
Hanna (missing), Ósk, Helena, Lilja Björk, Rakel, Laufey, Ellen, Hildur, Tinna. (Alls 9. Mæting = 8 túttur)


Í
 mat á föst: Hildur, Laufey, Rakel, Ósk, Tinna, Ellen. Alls = 6
#Kvöldmatur: Hamborgarar og brauð, ostasneiðar, sósa, tómatar, iceberg, agúrkur, gos(kók, sódavatn), ávaxtasafi, fl...........?
#Kvöldsnarl: Blómklál, brokkolí, agúrka, papríka (ojj), ídýfur, fl..........?


Í
mat á laugardag
: Hildur, Laufey, Rakel, Ósk, Tinna, Ellen, Lilja. Alls = 7
#Morgunmatur: Brauð, mjólk, morgunkorn?, kaffi, fl............?
#Hádegismatur:..........?
#Kaffi:.............?
#Kvöldmatur: Kjúklingabringur, krydd,  sveppir, kartöflur, salat, hnetur í salatið, fetaostur, sósu fl........?
#Kvöldsnarl: aftur grænmeti. Nammi....?, fl.......? bjór,vín,bjór,vín,bjór,vín J úúúlalala!!!

#Annað: vínber, jarðaber, drykkjarföng önnur en áfengi, snakk, osta, sultu.

 

Í mat á sunnudag: Hildur, Laufey, Rakel, Ósk, Tinna, Ellen, Lilja. Alls = 7
#Morgunmatur: afréttari ............fl?
# Getum svo bara skóflað í okkur afganga ekki nema Lilja Björk ætli að útbúa dýrindis skonsur með ávöxtum og sýrópi eins og síðast...mmmmm!

Hvað segi þið um þetta? Hvað vilji þið alls ekki og hverju vilji þið bæta við. Það væri mjög gaman að heira frá einhverjum sem er betri eldabuska á sínu heimili en ég :)

KV. Trúnótútta...búið ykkur undir samræður


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.07.2008 13:05:44 / Laufey

Sól sól skín á mig...trala la la la la la la la la


Á föstudag:
Norðan 3-6 m/s og víða bjart veður, en heldur hvassari og rigning með köflum norðan- og norðanaustantil. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suður- og Vesturlandi.


Á laugardag:
Norðan 3-8 m/s og víða léttskýjað, en 5-10 norðaustanlands og dálítil væta af og til. Hiti breytist lítið. Hlýjast á Suður og Vesturlandi.

Laufey


» 20 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 23:52:29 / Laufey

Það eru 4 DAGAR Í............


Það er ekki hægt að orða þetta neitt öðruvísi þegar AÐALTÚTTURNAR taka sig saman í andlitinu og fara í eitt stykki sumarbústað !!!
Núna er það bara spurning hverjar bjóða sig fram til að fara á bíl og hvernig við viljum hafa þetta, eigum við að sjoppa saman eða í sitthvoru eða hvað vill mannskapurinn gera????

Ég er allavegana farin að hlakka MIKIÐ til :)
Laufs

» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25